Beint í efni
Þjónusta

Endurskoðun, bókhald og ráðgjöf fyrir fyrirtæki og opinbera aðila

Heildarlausn í fjármálum, frá bókhaldi og reikningsskilum til endurskoðunar og fyrirtækjaráðgjafar. Þjónustan er sniðin að umfangi hvers rekstrar, hvort sem um er að ræða lítið félag með fáa starfsmenn, samstæðu sem skilar reikningsskilum eftir IFRS eða opinberan aðila.

Hafðu samband
01Þjónusta

Endurskoðun og staðfesting

Endurskoðun eykur trúverðugleika reikningsskila gagnvart þeim sem á þeim byggja: eigendum, lánveitendum, fjárfestum og opinberum aðilum. Við framkvæmum lögbundna endurskoðun, könnun reikningsskila og aðra staðfestingarvinnu í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla, með óhæði og fagmennsku að leiðarljósi.

Lögbundin endurskoðun ársreikningaISA

Ársreikningar eru endurskoðaðir í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Niðurstaðan er óháð álit á því hvort reikningsskilin gefi glögga mynd af rekstri og efnahag félagsins.

Könnun árs- og árshlutareikningaISRE 2400 / 2410

Könnun er umfangsminni en full endurskoðun og hentar meðal annars fyrir árshlutauppgjör eða þar sem ekki er krafist endurskoðunar.

Önnur staðfestingarvinna

Við tökum að okkur staðfestingar sem lög, samningar eða lánveitendur krefjast, svo sem staðfestingu hlutafjár, uppgjör vegna styrkja og yfirferð á einstökum liðum reikningsskila.

Þarf félagið endurskoðun eða nægir könnun?Lestu samanburðinn
02Þjónusta

Reikningsskil, IFRS og IPSAS

Við gerum árs- og árshlutareikninga í samræmi við lög um ársreikninga og alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) sem og alþjóðlega reikningsskilastaðla fyrir opinberar stofnanir (IPSAS). Auk hefðbundinnar reikningsskilagerðar veitum við sérhæfða ráðgjöf við innleiðingu IFRS og IPSAS og úrlausn flókinna álitaefna, og getum tekið að okkur tímabundin verkefni þegar mest liggur við.

Ársreikningar og árshlutareikningar

Reikningsskilin eru unnin í samræmi við lög og staðla, með áherslu á skýra framsetningu og réttar upplýsingar fyrir eigendur, lánveitendur og aðra hagsmunaaðila.

Samstæðureikningsskil

Fyrir félög með dótturfélög vinnum við samstæðureikningsskil sem gefa heildstæða mynd af fjárhagsstöðu og afkomu samstæðunnar.

Innleiðing IFRS

Við leiðum fyrirtæki í gegnum innleiðingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla, frá mati á áhrifum til breytinga á bókhaldskerfum og verklagi.

IFRS og reikningsskilaráðgjöfIFRS

Við leysum úr þeim reikningshaldslegu álitaefnum sem upp koma í rekstri, hvort sem það varðar nýja staðla, leigusamninga, fjármálagerninga eða tekjuskráningu.

Samruna- og skiptingarreikningar

Við vinnum þau reikningsskil sem lög gera kröfu um við samruna eða skiptingu félaga og tryggjum að þau uppfylli kröfur hlutafélagalaga.

Skil ársreikninga og opinber skilÁrsreikningaskrá

Ársreikningi er skilað til ársreikningaskrár innan lögbundins frests, á því sniði sem krafist er og með þeim gögnum sem fylgja eiga. Við höldum yfirsýn yfir skilafresti félagsins og sjáum til þess að skilin séu frágengin tímanlega, svo hvorki sektir né skráning í vanskil komi til.

Reikningsskil opinberra aðilaIPSAS

Reikningsskil A-hluta ríkisins og ríkisaðila eru gerð á grundvelli alþjóðlegra reikningsskilastaðla fyrir opinbera aðila (IPSAS). Við leiðum innleiðingu IPSAS, frá mati á áhrifum og ákvörðun opnunarstöðu til breytinga á bókhaldskerfum, verklagi og framsetningu reikningsskila. Við veitum jafnframt ráðgjöf um beitingu staðlanna og þau álitaefni sem fylgja þeim, svo sem eignaskráningu og afskriftir, leigusamninga, skuldbindingar og tekjur án endurgjalds. Sveitarfélög og félög í opinberri eigu byggja á öðrum reikningsskilaramma og þar vinnum við eftir þeim reglum sem gilda um hvern aðila.

Ertu að undirbúa uppgjör?Við tökum stöðuna með þér
03Þjónusta

Fyrirtækjaráðgjöf

Við aðstoðum eigendur og stjórnendur við þær ákvarðanir sem skipta mestu: kaup, sölu og samruna, verðmöt, áreiðanleikakannanir og fjárhagslega endurskipulagningu. Þjónustan nær einnig til fjárhags- og sjóðstreymisáætlana og til stuðnings við stjórnir og endurskoðunarnefndir.

Kaup, sala og samruni fyrirtækjaPPA

Við fylgjum eigendum og stjórnendum í gegnum allt ferlið, frá undirbúningi til frágangs samninga. Við sjáum einnig um útdeilingu kaupverðs í samræmi við reikningsskilastaðla.

Verðmat fyrirtækja

Hvað er reksturinn í raun virði? Verðmat er unnið með viðurkenndum aðferðum og nýtist við kaup, sölu, kynslóðaskipti, uppgjör milli eigenda og aðrar mikilvægar ákvarðanatökur.

ÁreiðanleikakannanirDue diligence

Við bjóðum upp á heildarlausnir þar sem við greinum skattalega, fjárhagslega og rekstrarlega stöðu félags áður en gengið er frá kaupum eða sölu, svo báðir aðilar viti nákvæmlega hvað liggur að baki tölunum.

Fjárhagsleg endurskipulagning

Þegar reksturinn þyngist aðstoðum við við endurskipulagningu á rekstri og fjármögnun, með það að markmiði að treysta grundvöllinn til framtíðar.

Fjárhags- og sjóðstreymisáætlanir

Við gerum áætlanir sem sýna fjárþörf fram í tímann, svo stjórnendur sjái lausafjárstöðuna fyrir í stað þess að bregðast við henni eftir á.

Ráðgjöf til stjórna og endurskoðunarnefnda

Við styðjum stjórnir og endurskoðunarnefndir í eftirliti með fjárhagslegri upplýsingagjöf og innra eftirliti.

Stofnun félaga, rekstrarform og skráningar

Við aðstoðum við val á rekstrarformi og stofnun félags, þar á meðal samþykktir, hlutafé og skráningu hjá fyrirtækjaskrá. Sama gildir um þær breytingar sem verða á líftíma félagsins, nýja eigendur, breytta stjórn, hlutafjárbreytingar og samruna, og þær skráningar og tilkynningar sem þeim fylgja.

Ertu að huga að kaupum, sölu eða kynslóðaskiptum?Byrjum á verðmati
04Þjónusta

Bókhald og laun

Traust bókhald er grunnurinn að öllum fjárhagslegum ákvörðunum í rekstri. Við sjáum um daglega bókfærslu, afstemmingar og launavinnslu þannig að stjórnendur hafi ávallt réttar og tímanlegar upplýsingar undir höndum. Þjónustan er sniðin að hverjum rekstri, hvort sem þörf er á fastri bókhaldsþjónustu allt árið eða tímabundinni aðstoð þegar álagið er mest.

Bókfærsla

Allar fjárhagshreyfingar eru bókaðar jafnóðum, svo bókhaldið sé alltaf uppfært og aðgengilegt þegar taka þarf ákvörðun. Við leitumst við að nýta sjálfvirkar lausnir við færslu bókhalds, þannig að tíminn fari í yfirsýn og eftirlit fremur en innslátt. Við vinnum í þeim bókhaldskerfum sem félagið notar.

Afstemmingar

Banka-, birgja- og viðskiptamannareikningar eru afstemmdir reglulega. Þannig endurspeglar bókhaldið réttar tölur og misræmi kemur í ljós áður en það verður að vandamáli.

Launavinnsla

Við reiknum laun og launatengd gjöld og önnumst skil til opinberra aðila, þannig að laun séu rétt reiknuð og greidd á réttum tíma. Launaseðlar, skilagreinar og samskipti við stéttarfélög og lífeyrissjóði fylgja með.

VirðisaukaskattsskilVSK

Virðisaukaskattur er reiknaður og honum skilað innan lögbundinna skilafresta, í samræmi við gildandi reglur. Sama á við um staðgreiðslu og önnur reglubundin skil.

Tímabundin sérfræðiaðstoðSecondment

Þarf að brúa bil vegna fæðingarorlofs, mannabreytinga eða árstíðabundins álags? Við leggjum til reyndan sérfræðing inn í teymið á meðan, án þess að ráða þurfi starfsmann til frambúðar.

Þarftu aðstoð við bókhaldið?Hafðu samband og við finnum lausn fyrir þig
05Þjónusta

Skattar

Við veitum ráðgjöf um skattaleg álitaefni, aðstoðum við skattaútreikninga og skilum framtali.

Skattframtöl lögaðila

Við skilum framtali fyrir félagið innan skilafrests, byggt á ársreikningum, gögnum og upplýsingum frá stjórnendum.

Skattaútreikningar

Útreikningur tekjuskatts og frestaðrar skattskuldbindingar fyrir reikningsskil, ásamt afstemmingu milli bókhaldslegrar og skattalegrar niðurstöðu.

Ráðgjöf um skattaleg álitaefni

Við veitum ráðgjöf um skattaleg atriði sem snerta reksturinn, svo sem virðisaukaskatt, arðgreiðslur, samruna, kynslóðaskipti og val á rekstrarformi, svo stjórnendur geti tekið upplýstar ákvarðanir með skattalegar afleiðingar í huga. Álitaefni í virðisaukaskatti eru oft dýrust þegar þau eru leyst eftir á, hvort sem þau varða skattskyldu, undanþágur, innskattsrétt eða blandaða notkun.

Erlend fyrirtæki og fastar starfsstöðvarVSK-skráning

Erlend fyrirtæki með skattskylda starfsemi hér á landi eru skráningarskyld á virðisaukaskattsskrá. Við sjáum um skráninguna og reglubundin skil, ásamt staðgreiðslu og tryggingagjaldi vegna starfsmanna hér á landi. Hafi fyrirtækið enga starfsstöð hér hvílir skráningar- og skilaskyldan á umboðsmanni þess, og við getum tekið það hlutverk að okkur. Við leggjum jafnframt mat á hvort starfsemin telst föst starfsstöð, hvort einföld skráning er möguleg og hvort skilyrði endurgreiðslu virðisaukaskatts eru uppfyllt.

Nálgast skilafrestur?Hafðu samband tímanlega
Algengar spurningar

Spurt og svarað

Bókhald er dagleg skráning fjárhagshreyfinga: reikningar, greiðslur, laun og afstemmingar. Reikningsskil eru afurðin, ársreikningur eða árshlutareikningur sem dregur bókhaldið saman í samræmi við lög og staðla. Bókhaldið er hráefnið, reikningsskilin eru niðurstaðan.

Bæði endurskoðun og könnun eru staðfestingarverkefni, en endurskoðun felur í sér umfangsmeiri staðfestingarvinnu en könnun. Við endurskoðun er framkvæmd áhættumiðuð staðfestingarvinna í formi gagnaendurskoðunar, greiningaraðgerða og fyrirspurna, til að afla nægjanlegra og viðeigandi gagna og öðlast þannig nægjanlega vissu til að gefa út áritun sem felur í sér álit um að reikningsskilin gefi glögga mynd og séu án verulegra skekkna eða annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.

Við könnun er einkum stuðst við fyrirspurnir og greiningaraðgerðir og því ekki stuðst við eins ítarlegar staðfestingar til að álykta um að ekkert hafi komið fram sem bendi til annars en að reikningsskilin gefi glögga mynd.

Hvort félag er skyldugt til endurskoðunar ræðst fyrst og fremst af stærðarmörkum, sjá næstu spurningu.

Endurskoðunarskylda ræðst fyrst og fremst af stærð félagsins samkvæmt lögum um ársreikninga. Horft er til þriggja viðmiða: heildareigna, hreinnar veltu og fjölda ársverka. Fari félag yfir tvö þessara þriggja marka tvö reikningsár í röð ber því að kjósa sér endurskoðanda til að endurskoða ársreikning félagsins. Fjárhæðarmörkin eru endurskoðuð reglulega og því er rétt að kanna gildandi viðmið hverju sinni.

Samþykktir félags geta jafnframt kveðið á um endurskoðun, hluthafar geta krafist hennar og algengt er að lánveitendur, styrkveitendur eða aðrir samningsaðilar geri kröfu um endurskoðaðan ársreikning þótt félagið sé ekki lögum samkvæmt skylt til endurskoðunar.

Félög sem falla utan skyldunnar hafa svo frjálst val um hvort þau vilji að ársreikningur sé endurskoðaður, til dæmis til að styrkja traust gagnvart bönkum, viðskiptavinum og öðrum hagsmunaaðilum.

Já. Mörg félög halda sjálf um bókfærslu og útvista launavinnslu, VSK-skilum eða afstemmingum. Við skiptum verkþáttum með þér og skjalfestum hvor aðilinn gerir hvað, svo ábyrgðin sé skýr og engin skil falli á milli.

Verðið ræðst af umfangi: fjölda færslna, fjölda launþega, hvaða bókhaldskerfi er notað og hvort þörf er á mánaðarlegum uppgjörum. Hafðu samband og við gerum verðtilboð þegar umfangið liggur fyrir.

Þegar þörfin er tímabundin en verkefnið krefst reynslu: fæðingarorlof, uppsögn á miðju ári, uppgjör eða kerfisbreyting. Sérfræðingur frá okkur vinnur inni í teyminu í umsaminn tíma, án þess að ráða þurfi starfsmann til frambúðar.

Tökum fyrsta skrefið saman

Hafðu samband