Félag sem byggir á sterkum grunni
LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf, stofnað undir vörumerki LOGOS, sameinar sérþekkingu í endurskoðun, reikningsskilum, lögfræði og fyrirtækjaráðgjöf. Að stofnun þess stendur Þorsteinn Pétur Guðjónsson, löggiltur endurskoðandi, í samstarfi við LOGOS. Hér sameinast áratugareynsla beggja í eina heild. Félagið veitir fyrirtækjum og stofnunum þjónustu á sviði endurskoðunar, reikningsskila og fyrirtækjaráðgjafar og byggir á sömu grunngildum og LOGOS hefur staðið fyrir í meira en öld: heiðarleiki, fagmennska og metnaður.

Taktu þátt í uppbyggingunni frá fyrsta degi
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingum til starfa í endurskoðun og ráðgjöf á nýjum og spennandi vinnustað. Hjá okkur gefst tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu félagsins frá fyrsta degi og vinna náið með reyndum sérfræðingum í skemmtilegu umhverfi að fjölbreyttum verkefnum.
Áratugareynsla af ráðgjöf við íslenskt atvinnulíf
Þorsteinn Pétur Guðjónsson, sem leiðir félagið, er löggiltur endurskoðandi með yfir 26 ára reynslu af endurskoðun og ráðgjöf við fyrirtæki og stofnanir. Hann hefur starfað fyrir viðskiptavini í öllum helstu atvinnugreinum hér á landi og alþjóðleg fyrirtæki. Á þeim grunni byggir félagið þjónustu sína, djúpri þekkingu á íslensku atvinnulífi og áratugareynslu af því að fylgja viðskiptavinum í gegnum vöxt, breytingar og áskoranir.
Hafðu samband
Reynsla okkar og stöðugleiki í meira en 100 ár gerir okkur kleift að bregðast örugglega við því sem gerist í dag og undirbýr okkur fyrir það sem gerist á morgun.
